22.02.2008 15:09:48 / Rebza
Er voðaaaaa dugleg að blogga á læstu síðunni enda allt að gerast þessa dagana

. Bara senda mail á k_rebekka@hotmail.com og ég sendi lykilorðið

Knús
Rebekka
»
11.02.2008 13:53:53 / Rebza
Nýtt á læstu síðunni
»
06.01.2008 20:16:58 / Rebza
SLÓÐIN Á LÆSTU SÍÐUNA ER: www.blog.central.is/seljuskogar9
Lykilorðið er hægt að nálgast á maili eða msn : k_rebekka@hotmail.com
Knús Rebekka
»
01.01.2008 14:18:16 / Rebza
Þar sem húsmóðirin á bænum sá sér ekki fært að græja jólakort í ár sökum tímaskorts ákvað hún bara að semja smá yfirlitspistil yfir árið........enda mjög viðburðarríkt ár!!!!!
Árið hófst með látum á hönnunarbrautinni í IR þar sem ég kynntist fuuullt af yndislegu fólki.FÁ var þó kvatt með MIKLUM söknuði þar sem ég kvaddi unglinginn minn sem hafði haldið mér uppi önnina á undan. Finnst ég hafa lært alveg helling á þessum nokkrum mánuðum þarna í FÁ og IR. Þar var mikið föndrað og mikið hugsað.......held ég hafi aldrei verið svona illt í heilanum hehehe þurfti algjörlega að vera á tánum þar á bæ enda kom maí áður en ég vissi af. 
Í maí varð heimasætan okkar 7 ára (og maður spyr sig hvað er maður þá orðin gömul??? hmmm). Fyrsta hrukkukremið var keypt í sama mánuði...tilviljun eður ei!
Þar sem ég sá fram á fremur viðburðarsnauða mánuði ákvað ég að skella mér í fulla vinnu í bakaríinu Í PRÓFUNUM
. Skoðaði og sótti um í einu öðru bakaríi í konditornámi en ræturnar toguðu í mig og ég sat sem fastast í famelíufyrirtækinu. Hekla var mikið með mér á Akranesi í sumar og heimtaði að flytja þangað......með okkur eður ei
. Eitthvað sem við ætluðum ALDREI að gera aftur....
.
Í endaðan júlí fórum við í heimsókn í borgina okkar og gistum í 10 daga hjá Dísu og hennar frábæru famelíu..þau eru bara bestust
. Það var æðislegt og hittum við fullt af gömlum vinum og kunningjum. Keyrðum svo steikjandi hita til lalandia í lítið sætt sumarhús þar sem við gistum í 2 daga áður en ferðinni var haldið til kóngsins köben þar sem við gistum svo síðustu 2 næturnar áður en við héldum heim aftur í kuldann.
Þegar þarna var komið vorum við alvarlega farin að íhuga að flytja á Skagann. Ég fastréð mig í bakaríinu og fór á samning og þá fóru hlutirnir heldur betur að gerast hratt! Við sóttum um lóð og vorum svo heppin að nafnið mitt var dregið svo í dag fer allur okkar aukatími í planleggingar með lóðina að Seljuskógum 9
.
Haustið þaut áfram og lítið gert annað en að vinna og sofa og spá í húsamálunum. Í október varð svo litla gullið okkar 4 ára!!!! Ekki að trúa þessu
.
Í nóvember gerðist svo kraftaverk........við náðum að selja íbúðina í rvk og ekki nóg með það heldur tóku kaupendurnir við flækjunni sem stendur eftir þar. Mikill léttir við það bæði peningalega og andlega þó ég eigi alltaf eftir að sakna flottu íbúðarinnar og yndislega staðarins...maður verður bara að velja og hafna..þýðir ekkert annað. Krakkarnir voru rosalega fljót að aðlagast breyttum aðstæðum og nýjum stað og pabbinn var svo sem ekkert að kippa sér mikið upp við þetta EN mamman ææææ ELSKA bara RVK
Desember er búinn að vera æðislegur, mikill tími búinn að fara í krakkana. Jólasveinninn var víst mis skemmtilegur
fengum sko alveg að heyra það.....á 4 degi kom svo "mamma LOKSINS eitthvað af viti frá honum"
Svo er auðvita búið að baka og mála á piparkökur, fara í jólaboð og allt þetta hefðbundna. Skelltum okkur svo í bíó með þau á jólamynd sem var æðislegt. Héldum svo jólin bara 4 saman hérna á Einigrundinni og það var alveg rosalegga kósý......okkar fyrstu jól bara 4 saman og það var sko miklu æðislegra heldur en ég þorði að vona. Desember var því sannkallaður famelíumánuður þar sem var margt gert saman sem hefur annars farið lítið fyrir á árinu. Það er sem sagt búið að vera nóg að gera og ekki stefnir í minna á þessu nýja ári! Skemmtilegir en erfiðir tímar.....já það er sko ekki fríkeypis að vera EKTA íslendingur
.
Jæja ætla láta þetta duga núna......býst ekki við að blogga mikið meir á þessari síðu heldur ætla ég að halda áfram á læstu síðunni frekar...svo creapy þegar svona margir skoða en varla neinn kvittar....ekki alveg að fíla þetta 
Gleðilegt nýtt ár alle sammen kyss kyss og knús
»
12.12.2007 16:51:01 / Rebza
»
29.11.2007 17:16:25 / Rebza
Er komin með nýja LÆSTA síðu hérna á blogcentral í sambandi við framkvæmdirnar á húsinu fína, en slóðin á hana er www.blog.central.is/seljuskogar9 endilega sendið á mig ef þið viljið lykilorðið 
Knús
Bubba byggir
»
09.11.2007 16:32:56 / Rebza

Í tilefni þess að átakið "í kjólinn fyrir jólin" er hafið:
Við verðum öll þyngri með aldrinum, vegna þess að þá erum við orðin reynslunni ríkari og troðfull af upplýsingum. Svo ég er ekki feit, ég er í raun og veru bara svona virkilega gáfuð og það var bara alls ekki meira pláss í höfðinu, svo ég neyddist til að fylla upp í aðra líkamsparta í staðin
That's my story and I'm sticking to it
»
21.10.2007 11:53:51 / Rebza
Já enn og aftur er ég hissa.........litli kúturinn minn er barasta orðin 4 ára í dag sem þýðir auðvita að það eru 4 ár síðan hann skaust út eins og raketta á innan við klukkutíma
og sprengingarnar og lætin í framhaldinu hafa sko verið ófáar ójá það er sko óhætt að segja að ekki vanti orkuna hjá þessu litla gulli
Í dag ætlum við bara að hafa það kósý og baka vöfflur og köku
til að halda smá afmæli fyrir hann en við héldum nefnilega uppá það um síðustu helgi þar sem heimilisfaðirinn er á kafi í vinnunni í rvk núna.
Annars er það að frétta af húsasansi að teikningarnar eru klárar ......alveg hreint æðislegar og svo erum við komin með tilboð frá smellinn og fáum tilboð frá loftorku í vikunni. Eftir að við ákveðum okkur hvorn framleiðandann við veljum þurfum við svo að bíða fram í ca. mars eftir einingunum en á meðan þarf að græja grunninn, raflagnir, glugga og margt fleira svo okkur leiðist nú ekki þessa dagana
Stefnum svo á að flytja inn í bílskúrinn ca. næsta haust.
Fór einmitt á sýninguna hönnun og heimili í laugardalshöll í gær og varð vægast sagt fyrir vonbrigðum.......bjóst við svo miklu miklu meira....Var að vonast eftir meiri innréttingum til sýnis í bað og eldhús osfrv en þetta var meira svona smávöruhönnun.
knússs
»
12.10.2007 19:54:41 / Rebza
Jæja þá er allt að gerast með húsið. Arkitektinn er búinn að vera innan við mánuð að klára teikninguna þannig að hægt sé að senda hana til byggingarfulltrúa en það verður gert í næstu viku vonandi. Um leið og hann sá að ég hefði yfirhöndina og hann þyrfti bara að sætta sig við skrítnu gluggapælinguna mína skotgekk þetta
. Hann sagði að ein hliðin væri eins og kínverji en hann myndi bara breyta henni aðeins og þá yrði hún BARA eins og rostungur
en það yrði allt í lagi því það sæi þetta enginn hahahahahah glæstur þessi maður
Við sjáum sem sagt fram á að fá byggingarleyfi a.m.k. mánuð á undan áætlun......en alvaran byrjar þann 19. okt þegar reiða skal fram dágóða summu af gatnagerðargjöldunum
hvern hefði grunað að þau væru SVONA há....furðulegt að vera með greiðsluseðil á ísskápnum sem nær næstum 1,5 mill
já núna er sko ekki aftur snúið og eina sem hægt er að gera i stöðunni er að spýta í lófana og bíta á jaxlinn og grafa upp þolinmæðina sem ég fékk ALDREI í vöggugjöf.....helst í gær helst í gær is my middle name...........
En svona úr einu í annað þá gengur lífið bara sinn vanagang hérna á Einigrundinni og á ég erfitt með að lýsa með orðum hversu vel okkur líkar hérna í blokkinni...góður andi hérna það er á hreinu
.
Fór suður í vikunni að hitta kellurnar mínar þær Önnu Björg og Villu gellu og það var yndislegt eins og alltaf...dýrka þessar sætu konur
.Án þess að fatta það fékk ég loksins stimpilinn sveitalubbi......kom að sækja Samma í vinnuna alveg móð og másandi og sagði "úffh traffíkin er svo mikil að ég varð bara hrædd"..........karlinn bókstaflega missti hökuna niðri gólf......enda er ég örugglega eina manneskjan á jörðinni sem hef líst því yfir að ég eeeeeeeelska umferðarteppurnar og hraðann í rvk......já lubbbi minn svona er lífið hehehehhe en það er ekki þar með sagt að ég sé hætt að sakna borgarinnar ó nei það gerist ALDREI en manni líður bara allt öðruvísi með þetta allt saman.... ræturnar tosa í mann.
Jæja erum með barnaafmæli hérna á morgun svo best að fara að kúra sér
KnÚs og koSsaR og koma svo með kvitttttttttttið takk....hitti ófáa á ballinu um síðustu helgi sem sögðust alltaf kíkja hingað inn hmmmmmmmmm ó já þetta man maður þrátt fyrir skotalæti og djúserí hehehe úffffh sveitaböll eru sko sjúskuð...
»
24.09.2007 17:34:55 / Rebza

Jæja..........allt gott héðan ég er bara alltaf í bakaríinu að vinna í því að verða feit-ari..hmm þykist nú alltaf vera komin í gang en viti menn súkkulaðið bara RÆÐST á mig
. Í síðustu viku stóð ég mig nú ansi vel einn daginn, hafragrautur í morgunmat og svona og allt rosa hollt og skipulagt.........þangað til ég var búin að vera dáldið lengi í vinnunni og var orðið svolítið kalt og þreytt osfrv.......svo voru allir farnir svo ég fór eitthvað inná lager að sansa og mundi allt í einu eftir þessum sjúklegu súkkulaðivindlum lengst uppí hillu 
......ég fór auðvita að príla uppá kassa og hveitipoka
og nældi mér í þennan stóra og fína vindil og beit einn bita uhhmmm sá var góður ENNNNNNNNN næsta sem ég vissi var að ég lá á bakinu á hörðu og köldu gólfinu öll útí hveiti með útliimina uppá hinum og þessum stóru pokum svo ég var eins og könguló...úffh ég var sko ekki viss hvort ég væri lífs eða liðin......en hafði svo sem ekki miklar áhyggjur af því heldur af blessuðu SÚKKULAÐINU........jú jú það var sko bara bráðið og brotið í hendinni á mér.....held ég hefði ekki tognað svona illilega ef ég hefði einbeitt mér aðeins meira að því að lenda mjúklega heldur en að bjarga SÚKKULAÐINU..................ég stóð svo á endanum upp og fann þennan líka svakalega verk í hendinni
Svo fór ég til Hlín systir að fá smá vorkunnsemi en fyrsta sem hún sagði var "hvað varstu að gera?" og ég án þess að blikna svaraði "ÞRÍFA" HAHAHAHAHHAHAHA
gat sko ekki sagt hvað ég var actually að gera....allavega ekki fyrr en næsta dag en þá var hægri handleggurinn á mér ÞREFALDUR....alveg not grate í þessari vinnu
. ..Annars svona til gamans þá fór ég að googla súkkulaði...ekki spyrja mig afhverju........en komst að því að í dk er sko til félag fyrir súkkulaðiunnendur.....fíkla og maður sendir bara á þá hér til að gerast meðlimur hahahhahahahha E-mail: nytmedlem@chokoladeselskabet.dk úfffh langt leidd????
Annars gengur bara vel hérna á Akranesi allir rosalega glaðir með flutninginn held ég bara.........verð þó að viðurkenna að ég sakna ennþá borgarinnar alveg dáldið mikið sko...er reyndar alltaf svo þreytt eftir vinnu ennþá að ég hef svo sem ekki mikinn tíma til þess...maður fær bara margt annað í staðin hérna
. Já og svo má ekki gleyma að við erum komin með lóð að Seljuskógum 9 svo núna er ég bara í því að teikna upp innra skipulag og breyta og bæta....hittum arkitektinn aftur á miðvikudag og þá verður vonandi farið að vinna í teikningunni af alvöru
.
Jæja súkkulaðigrísinn kveður í bili
»
22.08.2007 18:45:27 / Rebza
Mér líður eins og mig sé að dreyma.......VIÐ ERUM FLUTT Á AKRANES
..eitthvað sem ég bjóst aldrei við að gera aftur hehe.
Hekla byrjar í Grundaskóla á föstudaginn og Sölvi í Skátaseli á mánudaginn. Skrítið allt saman...vorum bara 3 ár í rvk en jeminn hvað það var notó og nauðsynlegt. Sé sko ekki eftir þeim tíma þar sem okkur er búið að líða alveg svaka vel í Grafarholti og hugsa ég til holtsins míns með söknuði og tárum..en svona er lífið bara
.
Vorum búin að festa lóð......en fyrir einhvern "misskilning"(skulum bara orða það svona því ég nenni ekki spá í þessu meir) var lóðin seld öðrum......... Erum því bara róleg og ætlum að byrja að leigja hér samt núna 1.sept. litla íbúð rétt hjá skólanum hennar Heklu og leigja okkar út líka og setja hana á sölu...sans sans sans hehe
Svo bíðum við bara með tilhlökkun eftir réttu lóðinni
Þetta var greinilega ekki meant to be með hina og er ég auðvita strax búin að finna ýmsa galla við þá lóð hahahahhaha......já svona gerir maður þegar maður pompar á bossann......bara platar sjálfan sig til að standa upp aftur
.
Fáum íbúðina 1. sept. svo núna er bara að byrja PAKKA
og setja í 3. gír takk fyrir takk hehe.
Knús og kossar
»
08.08.2007 20:18:45 / Rebza
»
01.08.2007 22:08:58 / Rebza
Þar sem ég ætti að vera farin að sofa vegna
fyrirhugaðar þýskalandsferðar snemma í fyrramálið datt mér í
hug að blogga frekar.........
Við famelían erum hérna í brjálæðislega góðu
yfirlæti á Nyvang í nýja glæsilega húsinu þeirra Dísu og Snorra.
Ekkert smá kósý að vera hérna og við mikið búin að vera bara að
slappa af hérna þess á milli sem við höfum kíkt á búðirnar í
Perlegade.......þó verður að segjast að maður komist sko ekki með
tærnar þar sem við Karen höfðum hælana hérna í Þorrablótsferðinni í
fyrra heheheh þá held ég að viðvörunarbjöllurnar hjá Visa hf hafi
brunnið yfir......
Veðrið er ekki búið að vera neitt Mallorca veður
en ég get ekki sagt að ég gráti það. Það er náttúrlega aldrei kalt
hérna og svo sem ekki neitt slæmt veður en ég þoli svo illa mikinn
hita og að ég tali nú ekki um rakann sem fylgir hér í dk
. Í dag
var samt besti dagurinn veðurslega séð og eftir að hafa sótt litla
dýrið (bílaleigubíllinn sem var eitthvað minni en planið
var......)fórum við með heimilisfólkinu ásamt vinafólki þeirra út í
Katrinelund og grilluðum. Það var rosalega notó og léku krakkarnir
sér alveg villt og galið þar.
Eftir grillið rúntuðum við um gamlar
slóðir.....Sönderskovkollegið t.d. og sáum að gardínurnar okkar (og
Auðar og Daða reyndar líka hehe) voru enn á sínum
stað........þessir danir sko
Það var rosalega furðulegt að
stoppa þar fyrir utan og horfa yfir blokkirnar tvær og hugsa um
allar fjölskyldurnar sem bjuggu þarna einu sinni....þetta voru sko
góðir tímar og ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram...á föstudaginn
eru 4 ár frá því við fluttum
.
Á morgun er svo planið að fara til Þýskalands til
Hamburg og fara í dýragarð og fleira skemmtó. Næstu daga er svo
ýmislegt skemmtilegt á dagskrá hér í Sönder og svo á mánudagsmorgun
verður grátur og læti (hjá okkur en partý hjá Dísu og Snorra
hahhahaah segi svona held við séum nú búin að vera sæmilegir
gestir....
)en þá keyrum við syðst á sjálandi þar sem við erum að
fara í lítið sumarhús í Lalandia í 2 daga áður en ferðinni verður
heitið til kóngsins köben á hótel niðrí bæ
»
22.07.2007 01:16:31 / Rebza
»
24.06.2007 20:05:46 / Rebza
Hrútur (20.
mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti,
góður
að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa
upp skítinn.
Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og
slá tilgangslaus högg útí loftið.Þú ert kvikindi, en það hjálpar
hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.
Naut (20. apríl - 21. maí).Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu
staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina
sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi
efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína
hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.
Tvíburi (21. maí - 20. júní):Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur,
alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með
hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda
sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við.
Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og
óþarfa.
Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun
aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema
með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því
fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum.
Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og
hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og
sjálfsvorkunnsamur.
Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af
eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar
ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur
og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú
ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.
Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður
í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en
segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum,
þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en
stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.
Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og
vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í
fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka
ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of
latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra
fyrir öðrum.
Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og
valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því
einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn,
móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort
frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila
sama lagið.
Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í
öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt
erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og
veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum
á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.
Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll
vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að
skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki
gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með
minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum
og merkjavöru.
Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn,
og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða
getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo
sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika,
að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi.
Týndur á skýi í háloftunum.
Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur
ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða
átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En
þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir
ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja
raunveruleikann.
»
...